Heil og sćl öll saman :)Ellen Dana
Hæhæ allir og langt síðan síðast...
Ég ákvað að blogga smá í þessari blessuðu legu minni.
Af mér er að frétta að ég er ólétt
er komin rúmar 16 vikur og er sett 9 september. En nú eru málin þannig að ég er rúmliggjandi vegna blæðinga og verkja
þetta er svo leiðinlegt að liggja bara og geta ekkert... ég þakka sko bara fyrir að hafa hana mariu mína, hún er svooo búin að bjarga mér með krakkana og sjálfa mig bara. Við erum nebblega flutt á Neskaupsstað og búum inni á Mæju og Guðjóni ásamt dætrum þeirra tvemur. Ég fékk lyklana af húsinu sem við erum að fara að flytja inn í áðan en við flytjum ekki fyrr en í enda april vegna míns ástands þá má ég ekki pakka
arrrg bara
Björgvin er alveg gífurlega ánægður hérna. Hann er búinn að kynnast fullt af krökkum og unir sér frábærlega ![]()
Silja byrjaði í aðlögun í leikskólanum í dag og var smá feimin við krakkana en þetta kemur allt saman hjá henni. Henni finnst gaman að vera búin að flytja en vil samt stundum fara aftur á Breiðdalsvík litla prinsessan mín ![]()
jæja þá er kominn háttatími. Ég reyni að vera duglegri að blogga.
Kveðja að austan ![]()
ReykjavíkurferđEllen Dana
Komin heim að sunnan og það var æðislega gamanVerslaði mér helling af fötum, slatta á krakkana og smá á manninn. Lenti á útsölunum og eyddi kannski smá of mikið
Fór í þrítugs afmæli til Heiðars á laugardagskvöldið og drakk kannski heldur of mikið og var held ég enn þunn á þriðjudaginn
En Helga ég var búin að senda þér mail.... ég skal senda það aftur til þín. Ég hef kannski gert vitlausa adressu
Ég skrifa meir í kvöld er að fara að gera matinn kláran.
kveðja frá einni sem er löööööööt að skrifa
Komin afturEllen Dana
Hæhæ allir saman :)Ég er komin aftur
Ætla að byrja á að gefa upp nýja síðu fyrir krakkana. Var engan vegin að standa mig með síðurnar þeirra og er að prófa á barnanetinu
En af mér er það í fréttum að ég ákvað að fara í fjarnám og er í sál 103 og ensku 303
Við erum að taka húsið í gegn og þvílíkur munur... Það er verið að skipta um gluggana í eldhúsinu og í stofunni, verið að klára að klæða stafninn á húsinu, flísarnar á baðinu voru byrjaðar að losna svo Elli tók þær niður, pússaði og málaði. Við ætlum að reyna að skipta um eldhús innréttingu og baðherbergis innréttingu í haust og skipta um útidyrahurð
Ég er farin að sofa, skrifa vonandi á morgun.
Bæ bæ
Hér skal ég haldastEllen Dana
Ég nenni ekki að vera á central því ég kom ekki myndum inn og Hófí syss benti mér á þetta. En Hófí syss er hjá mér og við höfum það svooo gott, í gærkveldi var það ekkert annað en ostar, kex og vínber svo var legið og glápt úr sér augun yfir Grey´s Anatomy
Geggjað stuð en ég heyri í ykkur, ég ætla að fara að pína Hófí smá.
